Fjárhildur er fagmaður
Fjárhildur er bókhaldsþjónusta sem sérhæfir sig í alhliða bókhaldi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Við leggjum áherslu á fagmennsku, nákvæmni og persónulega þjónustu sem aðlagast þörfum hvers viðskiptavinar. Hvort sem um er að ræða daglegt bókhald, launavinnslu, ársreikninga eða ráðgjöf, er Fjárhildur til staðar með lausnir sem skapa yfirsýn og öryggi í fjármálum rekstursins.
Fjárhildur hugsar vel um þig
Við bjóðum upp á alhliða bókhaldsþjónustu fyrir lítil og meðalstór félög og einstaklinga. Kynntu þér þjónustu okkar hér neðar á síðunni.
Fjárhildur veitir alla almenna bókhaldsþjónustu
Almennt bókhald
Virðisauka-skattskýrslur VSK
Launavinnsla
Skattskýrslur einstaklinga
Ársreikningar og skattskýrslur lögaðila
Stofnun lögaðila
Húsfélagsþjónusta
Fjárhildur getur gert þér tilboð í stærri og minni verkefni. Hafðu samband til að sjá hvaða lausnir við getum boðið þér.
Húsfélags-þjónusta
-
Við bjóðum upp á bókhaldspakka fyrir húsfélög. Þeir bjóða allir upp á örugga og góða þjónustu á viðráðanlegu verði. Engin aukagjöld og ekkert bull! Við sjáum um bókhaldið og þú sérð um rest.